Flugstoðir.is - Hlutverk og markmið

Flugvellir á Íslandi

Rekstur og uppbygging íslenskra flugvalla
Rekstur íslenskra flugvalla felur í sér margþætta starfsemi til að tryggja að flugbrautir, flughlöð, flugstöðvar og allur búnaður flugvallanna séu í fullkomnu lagi; öryggismál, innra eftirlit, hönnun og framkvæmdir á ýmsum sviðum auk flugleiðsögu eru stór hluti þeirrar starfsemi.

Alþjóðlegar kröfur
Undanfarin ár hafa alþjóðlegar kröfur til flugverndar- og viðbúnaðarmála á flugvöllum aukist umtalsvert. Aðgengiskröfur að flugvöllum hafa verið hertar til muna og miklar breytingar hafa verið gerðar á öryggis-, flugverndar-, slökkvi, björgunar-, og neyðarviðbúnaðarmálum íslenskra flugvalla.

Umsjón með öryggismálum er unnin innan flugverndar- og björgunardeildar og eru neyðarviðbúnaðarmál tryggð með viðeigandi þjálfun, ítarlegri samhæfingu og gerð áætlana á því sviði bæði hvað varðar flugvelli landsins og flug yfir landinu.

Flugstoðir starfrækir gæða- og öryggisstjórnunarkerfi og tryggir með því gæði og öryggi  flugvalla- og flugleiðsöguþjónustunnar.

Áætlunarflugvellir á Íslandi eru 14, flugvellirnir eru í fjórum umdæmum og er hvert umdæmi með umdæmisstjóra.

Stærsti flugvöllurinn sem Flugstoðir reka er Reykjavíkurflugvöllur.

Áætlunarflug frá Reykjavík er á 14 viðkomustaði á landsbyggðinni, og utanlands til Færeyja og Grænlands.  Ennfremur er leiguflug frá Reykjavíkurflugvelli. 

Flugvellir á Íslandi eru flokkaðir í sex flokka og fer flokkunin eftir ýmsum atriðum eins og aðflugstæki, ljósabúnað, snjóruðningsgetu, tækjbúnað, öryggismál og margt annað.  Þjónustutímar flugvalla á Íslandi er hægt að nálgast í flugmálahandbókinni.

Veður á flugvöllum.

 Áætlunarflugvellir á Íslandi eru:

Umdæmi 1 Umdæmi II Umdæmi III Umdæmi IV
Reykjavík Ísafjörður Akureyri Egilsstaðir 
Vestmannaeyjar Þingeyri Sauðárkrókur Hornafjörður
Bakki  Gjögur Grímsey Vopnafjörður
  Bíldudalur  Þórshöfn  


Flugbrautir með bundnu slitlagi:


UMDÆMI l UMDÆMI II UMDÆMI III UMDÆMI IV
Rif Patreksfjörður Húsavík  
Stóri - Kroppur  

Siglufjörður

 
    Reykjahlíð  

Flugbrautir með malarslitlagi:

UMDÆMI l UMDÆMI II UMDÆMI III UMDÆMI IV
Búðardalur Arngerðareyri Blönduós Borgarfjörður eystri
Flúðir Hólmavík Grímsstaðir Breiðdalsvík
Húsafell Reykhólar Herðubreiðalindir Djúpivogur
Hveravellir Reykjanes Kópasker Fagurhólsmýri
Kerlingafjöll   Melgerðismelar Norðfjörður
Kirkjubæjarklaustur   Raufarhöfn  
Þórsmörk    
Nýji Dalur      
Sandskeið      
Skálavatn      
Skógarsandur      
Sprengisandur      
Stykkishólmur      
Vík      

Flugbrautir með grasyfirborði:
UMDÆMI l
Hella
Kaldármelar

 

Flugstoðir ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband